Boðhlaup BYKO - 4x4 BOÐHLAUP

Boðhlaup BYKO fer fram í Kópavogsdal.

Boðhlaupið fer þannig fram að hver liðsmaður hleypur 4 km hring, þ.e. allir í liðinu hlaup 4 km hvor fyrir sig en aðeins einn í einu. Þátttakendur hlaupa með boðhlaupskefli sem þarf að afhenda næsta hlaupara áður en hann leggur af stað sína 4 km. Hlaupaleiðin er falleg og þægileg á fótinn sem ætti að henta öllum þeim sem hafa áhuga á að taka þátt.

Rás- og endamark í boðhlaupinu eru staðsett við Fífuna og er staðsetning þeirra á sama stað sem myndar skemmtilegt andrúmsloft þar sem hægt er að hvetja liðið sitt áfram og njóta samverustundar með samstarfsfélögum og vinum.

Boðhlaupið er viðburður fyrir fyrirtæki, samtök og vini sem vilja gera sér glaðan dag saman.
Áhersla er lögð á gleði, vinskap, liðsvinnu og hlaupaánægju.

Taktu daginn frá og vertu með í einum skemmtilegasta hlaupa- og hreyfiviðburði ársins í Kópavogsdal fimmtudaginn 30. júní kl. 18:00.

Hlaupaleið